Mamita Tískuverslun

Verslun

Um okkur

Mamita.is

Mamita.is er íslensk vefverslun sem býður upp á alls kyns fallegar vörur og glæsilegan tískufatnað.
Markmið fyrirtækisins er að veita faglega og persónumiðaða þjónustu með ánægju viðskiptavina að leiðarljósi.

Glamúr – Glæsileiki – Góð þjónusta

Mamita tískuverslun

Greiðslumátar

Hægt að greiða með greiðslukorti eða netgíró.
Kaupandi greiðir flutningskostnað samkvæmt verðskrá Póstsins/Dropp.
Ekki er í boði að borga á staðnum hjá okkur ef varan er sótt.

Afhending vöru

Afhendingartími er miðaður við 2–7 virka daga eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.

Valið er hvort kaupandi sækir vöru eða fær hana senda þegar gengið er frá pöntuninni í netversluninni; Hægt er að sækja til okkar í Kópavog skv samkomulagi – Ath að ekki er hægt að máta vöru á staðnum. Hægt er að fá vöruna senda heim með Póstinum/Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins/Dropp um afhendingu vörunnar. Mamita.is tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð og ber því ekki ábyrgð á tjóni sem varan kann að verða fyrir í flutningi en slíkt tjón er á ábyrgð kaupanda.

Skilaréttur og endurgreiðsla

Skilaréttur er 14 dagar frá afhendingu fyrir vörur sem keyptar eru í vefverslun Mamita.is

Skilaréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuð og í upprunalegu ástandi. Mamita.is áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru til baka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt. Ef vöru er skilað í gegnum póstsendingu ber kaupandi allan kostnað af flutningsgjöldum. Kvittun fyrir vörukaupum þarf í öllum tilvikum að fylgja með. Ef vara er hins vegar á einhvern hátt gölluð borgar Mamita.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru.

Ef skipta á vöru sendið póst á netfangið mamita@mamita.is

Skilmálar

Vefverslunin mamita.is er opin allan sólarhringinn alla daga ársins.
Netfang: mamita@mamita.is

Mamita.is áskilur sér rétt til þess að hætta við pantanir fyrirvaralaust til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, innsláttarvillna eða ef varan er ekki lengur til á lager. Einnig áskilur Mamita.is sér rétt til þess að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust.

Við reynum eftir fremsta megni að setja inn myndir sem sýna rétta liti vörunnar en þar sem litir geta verið ólíkir milli tölvuskjáa getum við ekki tryggt það að þinn tölvuskjár sýni litinn nákvæmlega eins og hann er í raun. Stærðir á mismunandi flíkum geta í einhverjum tilfellum verið ólíkar.

Athugið að útsöluvörum, eyrnalokkum og undirfatnaði, samfellum, pallíettukjólum fæst hvorki skilað né skipt.

Trúnaður

Mamita.is heitir kaupanda fullum trúnaði er varðar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í viðskiptum og verða upplýsingarnar ekki afhendar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Ef þú hefur einhverjar spurningar þá endilega hafðu samband með tölvupósti á mamita@mamita.is
Kveðja,
Starfsfólk Mamita.is